9.8.2011 | 20:21
Óeirðir í borgum Bretlands.
Myndirnar eru ótrúlegar. Bifreiðar í ljósum logum. Húsaraðir brenna. Gluggar brotnir og verslanir rændar. Ungt fólk lætur greiðar sópa. Fremur skemmdarverk og rán. Lögreglan réð ekki við ástandið til að byrja með en nú hefur hún náð styrk sínum. En hvað býr að baki? Hvað fær ung fólk til að beita ofsafengnu ofbeldi? margt má nefna; fáfækt,atvinnuleysi,slæmar framtíðarhorfur, niðurskurður á bótum og félagslegri aðstoð,vaxandi bil milli ríkra og fátækra, upplausn í fjölskyldum og hatur á lögreglu og stjórnvöldum.En nægja slíkar skýringar?Hvað fær fólk til að ræna verslanir? GSM símar eru notaðir til að koma fréttum , upplýsingum og ákvörðunm á milli manna. Unga fólkið kann á tæknina. Internetið er einnig notað;twitter og facebook. Sýnum þeim ríku að við getum gert það sem við viljum; kannski býr þetta að baki.Hópur sem hefur veið útilokaður og afskiptur sýnir að hann hefur líka vald.
|
Þungorður borgarstjóri |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 28581
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


gattin
nautabaninn
valdivest
rabelai
Athugasemdir
Það er ekki gott að segja hvað stjórnar akkúrat þarna núna. Það gætu nú verið ill og pólitísk áhrif sem stjórna þessu. En það er staðreynd að stéttarskipting og óréttlæti boðar aldrei neitt gott. Enginn þolir slíkt óréttlæti og skort á atvinnu og lifibrauði til lengdar, án þess að missa tökin á einn eða annan hátt.
Vonandi ná heims-stjórnvöldin að skilja mikilvægi réttlætis og friðar í þessum vanþroska og grimma mannheimi jarðarinnar.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 9.8.2011 kl. 23:41
er þetta ekki eitthvað sem er okkur nær en okkur grunar. hvað finnst okkur að í okkar samfélagi. ríkistjórnin, skattar og álögur upp úr öllu valdi. fólk að reina að komast burt undan ástandinu. á meðan er allt afskrifað af þeim sem að hruninu stóðu. þrátt fyrir að þeir færðu góðærið til landsins að þá hafa þeir ekki meiri réttindi en aðrir.
ég sé alveg fyrir mér að fólkið í bretlandi hugsi á svipuðum nótum. það er bara eins gott að lögreglan geri engan óskunda eins og sú breska. hver veit hvað gæti gerst.
el-Toro, 10.8.2011 kl. 02:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.