Óeirðir í borgum Bretlands.

Myndirnar eru ótrúlegar. Bifreiðar í ljósum logum. Húsaraðir brenna. Gluggar brotnir og verslanir rændar. Ungt fólk lætur greiðar sópa. Fremur skemmdarverk og rán. Lögreglan réð ekki við ástandið til að byrja með en nú hefur hún náð styrk sínum. En hvað býr að baki? Hvað fær ung fólk til að beita ofsafengnu ofbeldi? margt má nefna; fáfækt,atvinnuleysi,slæmar framtíðarhorfur, niðurskurður á bótum og félagslegri aðstoð,vaxandi bil milli ríkra og fátækra, upplausn í fjölskyldum og hatur á lögreglu og stjórnvöldum.En nægja slíkar skýringar?Hvað fær fólk til að ræna verslanir? GSM símar eru notaðir til að koma fréttum , upplýsingum og ákvörðunm á milli manna. Unga fólkið kann á tæknina. Internetið er einnig notað;twitter og facebook. Sýnum þeim ríku að við getum gert það sem við viljum; kannski býr þetta að baki.Hópur sem hefur veið útilokaður og afskiptur sýnir að hann hefur líka vald.
mbl.is Þungorður borgarstjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað gerist í dag á Wall Street?

Dax þýska vísitalan hefur lækkað um rúm 3% eftir hádegi. Svipaða sögu er að segja frá París.Fróðlegt er að bera saman lönd og skuldir ríkisins. Ef við notum milljarða evra sem einingu verða tölurnar þessar.
USA 10040
Japan 98400
Þýskaland 2080
Ítalía 1843
Braselía 1822
Frakkland 1551
Bretland 1351
Indland 900
Kína 799
Spánn 639
Kanada 615
Til samanburðar má nefna að samanlögð landsframleiðsla ríkja heims er 47081 milljarðar evra.
mbl.is DAX lækkar um rúm 3%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mánudagur á fjármálamörkuðum.

Hlutabréfavísitöur lækkuðu mikið á Asíu mörkuðum en í Evrópu eru litlat breytingar. Seðlabanki Evrópu mun kaupa ríkisskuldabréf Ítala og Porttúgala. En skuldavandinn hefur ekki horfið. Athyglin beinist að USA. S%P stærsta matsfyrirtækið lækkaði lánshæfismat en sumir útreikningar voru skakkir. En það breytti ekki niðurstöðunni. Vandi USA er pólitískur. Flokkarnir geta ekki komið sér saman umað hækka skatta en það verður að gera. Hátekjufólk og stórfyrirtæki verða að borga meira. Útgjöld hafa vaxið hjá ríkinu. ´Meðalaldur hækkar og gömlu fólki fjölgar. heilbriðismál- og lífeyrismál eru stór málaflokkur. Hernaðarútgjöld eru mikil og hafa vaxið. En USA er langstærsta hagkerfið og getur borgað og á að borga. Ástandið í USA hefur áhrif um allan heim.Allir fjárfestar fylgjast náið með fjármálamörkuðum þar. Tölurnar sem S%P notaði í útreikningum sínum eru opinberar og öllum kunnar. Alls konar fjárfestar, stjórnvöld, fjármálaeftirlit og stofnaanir taka mark á því sem matsfyrirtæki segja að því tilskildu að þau sinni hlutverki sínu. Það gerði s&P varðandi USA.
Í byrjun ágúst lítur listinn yfir lönd sem eiga á hættu að lenda í vanskilum svona út:
Rang Land Risk Premium PD Note Rating
1 (1) Greece 1644 (-22%) 98% U, R, I, E, S CCC
2 (2) Venezuela 956 (3%) 88% BB-
3 (4) Pakistan 883 (5%) 86% 5y B-
4 (3) Portugal 855 (-5%) 85% BBB-
5 (12) Cyprus 809 (118%) 83% A-
6 (5) Ireland 716 (-5%) 79% U, R, I, E, S, K BBB+
7 (6) Argentine 691 (7%) 77% R B
8 (7) Jamaica 581 (5%) 71% B-
9 (8) Ukraine 494 (3%) 65% I,U B+
10 (20) Spain 414 (40%) 58% AA
11 (18) Hungary 406 (30%) 57% I,U,K, E,S BBB-
12 (11) Lebanon 398 (7%) 56% B
13 (9) Dominican Republic 391 (3%) 56% B+
14 (10) Dubai 387 (3%) 55%
15 (15) Croatia 378 (19%) 54% BBB-
16 (29) Italy 373 (66%) 54% A+
17 (14) Vietnam 354 (4%) 52% BB-
18 (13) Serbia 349 (1%) 51% I BB
19 (17) Egypt 344 (9%) 51% 5y BB
20 (16) El Salvador 318 (0%) 48% BB-
21 (19) Iraq 299 (0%) 46%
22 (23) Romania 287 (14%) 45% U,K,I BB+
23 (25) Malta 287 (19%) 45% A
24 (24) Bulgaria 285 (13%) 44% U,K BBB
25 (26) Latvia 269 (15%) 42% I,U,R, K,E,S BB+
26 (27) Lithuania 262 (12%) 42% U,K BBB
27 (22) Bahrain 261 (1%) 41% BBB
28 (21) Iceland 256 (-8%) 41% I,U,R BBB-
29 (28) Turkey 254 (11%) 41% BB
30 (40) Belgium 240 (40%) 39% AA+
31 (32) Poland 230 (19%) 38% E A-
32 (35) Kazakhstan 224 (19%) 37% BBB
33 (30) Algeria 220 (0%) 36%
34 (34) Morocco 206 (8%) 34% BB+
35 (31) Costa Rica 203 (2%) 34% BB
36 (33) Guatemala 200 (4%) 33% BB
37 (37) Russia 197 (8%) 33% K BBB
38 (36) Uruguay 189 (1%) 32% BB
39 (38) Philipines 182 (0%) 31% BB
40 (39) Indonesia 182 (1%) 31% BB+
41 (41) Israel 168 (3%) 29% A
42 (49) Slovenia 167 (26%) 29% AA
43 (43) Peru 167 (5%) 29% BBB-
44 (42) Thailand 164 (0%) 28% BBB+
45 (45) Brazil 161 (11%) 28% BBB-
46 (44) South Africa 159 (8%) 28% BBB+
47 (58) France 159 (46%) 28% U AAA
48 (46) Mexico 157 (11%) 27% BBB
49 (47) Colombia 156 (10%) 27% BBB-
50 (54) Slovakia 155 (23%) 27% A+
51 (52) Panama 145 (12%) 25% BB+
52 (48) Korea 137 (3%) 24% A
53 (51) Malaysia 135 (4%) 24% A-
54 (53) China 130 (3%) 23% U AA-
55 (59) Estonia 129 (22%) 23% A
56 (57) Czech Republic 128 (13%) 23% R A+
57 (50) Qatar 127 (-3%) 23% AA
58 (55) Abu Dhabi 123 (-1%) 22% AA
59 (56) Japan 122 (0%) 22% AA-
60 (63) Austria 117 (39%) 21% AAA
61 (69) Denmark 101 (63%) 19% AAA
62 (60) Saudi Arabia 96 (1%) 18% 5y AA-
63 (62) United Kingdom 95 (12%) 17% U AAA
64 (61) Chile 95 (1%) 17% A+
65 (67) Germany 89 (38%) 17% AAA
66 (70) Netherlands 78 (40%) 15% AAA
67 (71) Finland 75 (41%) 14% S AAA
68 (66) Hong Kong 73 (9%) 14% AAA
69 (65) Singapore 73 (6%) 14% AAA
70 (64) New Zealand 70 (0%) 13% AA+
71 (68) USA 65 (2%) 12% U AA+
72 (73) Sweden 61 (50%) 12% AAA
73 (72) Switzerland 48 (-2%) 9% AAA
74 (75) Norway 48 (49%) 9% AAA
75 (74) Australia 37 (0%) 7% AAA
mbl.is Mikil hækkun í Mílanó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svartur mánudagur?

Mat S&P á lánshæfi USA hefur skapað mikla óvissu á öllum fjármálamörkuðum. Hvað gerist á morgun? Það mun hafa áhrif á örlög margra. Verðfall á mörkuðum í USA , Evrópu og Asíu hefur margvísleg áhrif. Portúgal og Ítalía óttast hækkun vaxta. Fróðlegt er að fylgjast með viðbrögðum Kínverja. Fréttastofan Xinhua sendi frá sér mjög harðorða tilkynningu. Nú eru dagar skuldasöfnunar USA liðnir.Ekki er hægt lengur að lifa um efni fram.Ítrekuð er sú skoðun Kínverja að dollarinn geti ekki valdið hlutverki sínu sem helsti gjaldmiðill heims. Kínverjar skynja vel að völd þeirra fara vaxandi.En óvissan er margvísleg. Eitt matsfyrirtæki hefur lækkað lánshæfi USA en ekki önnur en þá er Dagong undanskilið. Kannski verður ekkert hrun á morgun heldur litlar breytingar. Það hefur legið í loftinu um nokkurt skeið að S&P myndi lækka mat sitt á USA. Fjármálamarkaðurinn hefur etv. þegar brugðist við þessu. Kannski hafa þessar breytingar lítil áhrif á hagvöxt,atvinnuleysi og fleiri raunstærðir. Hver veit? Geithner fjármálaráðherra USA heldur starfi sínu. Það er hagstætt fyrir Obama forseta. Kannski eru fleiri jákvæð teikn?
mbl.is Óttast verðfall á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

S&P kann ekki að reikna.

Í útreikningum matsfyrirtækisins sem liggja þeirri ákvörðun til grundvallar að lækka lánshæfismat USA er tveggja billjón dala villa. Mat fyrirtækisins hefur oft verið harðlega gagnrýnt. Yfirvöld í USA og Ítalíu hafa rannsakað fyrirtækið vegna ólögmætra starfshátta. Viðbrögð á fjármálamörkuðum við lækkun á mati USA hafa verið á eina lund. Alls staðar hefur oðið lækkun en mismikil. Kína hefur afar mikilla hagsmuna að gæta sem stærsti lánveitandi USA. Kínverskir ráðamenn munu án efa gera skýrar kröfur um að tekið verði fullt tillit til hagsmuna þeirra. USA verður að ná tökum á skulda-og eignavanda og koma hagxexti af stað.Stórveldin Kína og USA er hvert öðru háð og nú er það Kína sem gefur tóninn.
mbl.is Stærðfræðikunnáttan skelfileg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðmæti útfluttra sjávarafurða vex.

Verðmæti munu vaxa um 16 milljarða á þessu ári og spáð er aukningu um 4 millarða á næsta ári. Aflaheimildir eru nú meiri, verð á erlendum mörkuðum mjög hagstætt og krónan tiltölulega stöðugt. Í fyrra var útflutningsverðmæti sjávarafurða 220 milljarðar en það voru 40% af vöruútflutningi íslenskra fyrirtækja. Sjávarútvegurinn er helsta útflutningsgreinin og verður það mjög líklega um fyrirsjánanlega framtíð.
mbl.is Skilar 9% meiru í ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gordon Brown um vanda ESB.

Gordon brown hefur skrifað athyglisverða grein um vanda ESB. Hann gagnrýnir leiðtoga Þýskalands og Frakklands harðlega. Þeir greini ekki vandann rétt og horfist ekki í augu við vandamálin í heild. Vandamálið er ekki skuldir og halli á fjárlögum einstakra ríkja, eins og Írlands, Portúgal, Spán og Ítalíu. Málið er víðtækara og snertir öll lönd ESB að mati Brown. Ekki verður tekið á vandamálinu nema að endurskipuleggja allt bankakerfi ESB og til þess þarf aðkomu AGS að mati Brown. Vandinn er þrenns konar ; fjármálakreppa, bankakreppa og lítill hagvöxtur.Áratugur atvinnuleysis er glataður tími og tilgangslaus fórn. Viðbrögð stjórnmálamanna við kreppunni hafa um leið komið í veg fyrir að hagvöxtur gæti komist af stað.Brown var á móti upptöku evrunnar á sínum tíma. Skoðun hans var sú að á evrusvæðinu væru ekki til aðferðir og stjórntæki til að bregðast við samdrætti/kreppu og finna ráð gegn slíku. En hvar eru sóknarfæri? Brown bendir á að auka megi viðskipti við og auka útflutning til landa eins og Kína, Indlands, Indeónesíu, Tyrkland, Rússland, Braselíu og Kóreu. Þessi lönd eru að auka hlutdeild sína í heimsviðskiptum og á vaxandi mörkuðum eru sóknarfæri.
mbl.is „Evru-ríkin misstu af tækifæri“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skák gegn hungri.

Skákmaraþonið í Ráðhúsinu er gott framtak og öllum aðstandendum til sóma. Í Sómalíu er skelfilegt ástand og það er skylda allra að bregðast við og veita hjálp. Gens una sumus er einkunnarorð FIDE alþjþoðaskáksamandsins. Mannkynið er ein fjölskylda. Við berum ábyrgð hvert á öðru.
mbl.is „Hefur gengið alveg frábærlega“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lánshæfismat USA lækkað...

Matsfyrirtækið S&P hefur lækkað lánshæfismatið úr AAA í AA+. BNA er nú ekki lengur í flokki með Þýskalandi, Noregi og fleiri ríkjum í efsta flokki. Skuldir USA eru stjarnfræðilegar eða 14.3 milljarðar dollarar. Afar hatramar deilur á þingi sýna að stefna í ríkisfjármálum er hitamál og erfitt úrlausnar. S%P taka það fram að stjórnkerfið/stjórnmálamenn eigi afar erfitt með að taka á málum. Atvinnuleysi í USA er nú 9.1% en hefur undanfarið verið rúm 10%.Fátækt fer vaxandi og þeir sem þurfa einhvers konar aðstoðfjölgar. USA er afar auðugt land en þjóðin lifir um efni fram. Hallinn á ríkissjóði er fjármagnaður með sölu skuldabréfa sem kínverski risasjóðurinn hefur keypt í stórum stíl. En sá sem lánar þarf að vera viss um að fá borgað aftur. Dollarinn er langmikilvægasti gjaldmiðill jarðarinnar og næst þar á eftir kemur evran.Þessi stóru hagkerfi eiga í margvíslegum vanda sem mun hafa áhrif allsstaðar. Líklegt er að fleiri matsfyrirtæki muni lækka lánshæfismat USA. Við lifum á viðsjárverðum tímum.
mbl.is S&P lækkar Bandaríkin í AA+
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árni Páll og Evran...

Það hljómar sérkennilega þegar Árni Páll segir í viðtali við franskt blað að evran myndi veita íslensku hagkerfi stöðugleika. Mikill óstöðugleiki einkennir fjármálamarkaði heimsins þessa dagana. Vísitölur sýna mikla lækkun og mikil óvissa ríkir um framhaldið. Menn deila um framtíð evrusvæðisins og hversu lengi evran muni lifa. Stór hagkerfi eins og Spánn og Ítalía eiga í miklum erfiðleikum. Atvinnuleysir á Spáni er með ólíkindum og skuldir ítalska ríkisins eru miklar. Enn meiri eru skuldir bandaríska alríkisins. Allt þetta veit Árni Páll og af þessu hefur hann áyggjur segir í le Monde. En hvað um íslensku krónuna? Hún er í böndum og í skjóli hafta. óróleikinn hefur ekki bein áhrif.hrunið var hrun bankakerfis og gjaldmiðils með skelfilegum afleiðingum fyrir þjóðina. Fjölmargir hafa dregið af þessu þann lærdóm að krónan sé ekki nothæfur gjaldmiðill á tímum opinna viðskipta og alþjóðlegs fjármálamarkaðar. Fjölmargar hugmyndir hafa verið settar fram um annan mögulegan gjaldmiðil. Það virðist mótsögn í málflutningi Árna Páls. Erfiðleikar evrusvæðisins eru ekki evrunni að kenna en erfiðleikar íslenska hagkerfisins eru (ma) krónunni að kenna.ætti það ekki að vera efnahagsstefnan í báðum tilvikum.
mbl.is Segir evru veita stöðugleika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um þjóðfélagsmál .
Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 28534

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband